Ægir Karl Ægisson nýr formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum

Á fundinum lét Snjólaug E. Bjarnadóttir af formennsku í félaginu og Ægir Karl Ægisson tók við.
Nokkrar breytingar urðu á skipan Félags stjórnenda í framhaldsskólum í stjórnir á vegum Kennarasambands Íslands á aðalfundi FS sem haldinn var á Bifröst 7. júní sl. Á fundinum lét Snjólaug E. Bjarnadóttir af formennsku í félaginu og Ægir Karl Ægisson tók við.
Stjórn FS veturinn 2018 - 2019:
- Ægir Karl Ægisson (FS), formaður
- Guðrún Randalín Lárusdóttir (TS)
- Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir (MA)
- Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir (VA)
- Þorbjörn Rúnarsson (FLB)
Varamenn í stjórn:
- Guðlaug Pálsdóttir (FS)
- Snjólaug E. Bjarnadóttir (FG)
Engar breytingar eru á skipan fulltrúa í Vísindasjóð FF og FS.
Ekki tókst að finna fulltrúa í Útgáfustjórn, þar hættir Anna María Jónsdóttir (VMA). Stjórn félagsins var falið að finna fulltrúa FS í stjórninni.
Í stjórn Orlofssjóðs kemur Kristín Helga Ólafsdóttir (FG) inn sem varamaður í stað Drafnar Viðarsdóttur.
Ekki verða breytingar á aðalmanni í stjórn Sjúkrasjóðs, þar verður Leifur Ingi Vilmundarson (MS) áfram aðalmaður, en Berglind Halla Jónsdóttir (FB) kemur inn sem varamaður.
Félag stjórnenda í framhaldsskólum var stofnað 1999 og er eitt af sjö aðildarfélögum Kennarasambands Íslands. Félagsmenn eru um hundrað og rétt til að gerast félagar eru aðstoðarskólameistarar, konrektorar, staðgenglar skólameistara/rektors, áfangastjórar og aðrir þeir sem gegna að minnsta kosti hálfri stöðu sem stjórnendur í framhaldsskólum.

Ægir Karl Ægisson, formaður FS.