Aðventuhátíð í Álftamýrarskóla

Það er ótrúlega gaman að upplifa hvað nemendur setja sig vel inn í skipulagið og hvað allt gengur vel fyrir sig og án árekstra.
Frá árinu 2006 höfum við í Álftamýrarskóla haldið aðventuhátíð á hverju ári. Hátíðin er haldin í fyrstu viku aðventu og hefur þróast í tveggja dagparta útikennsluhátíð. Við vinnum í myrkrinu á morgnanna frá kl. 8:30 til 10 og nýtum þann ævintýraljóma sem myrkrið gefur okkur. Nemendur fara milli stöðva og fást við fjölbreytt viðfangsefni.
Upphaflegu hugmyndina að hátíðinni átti Brynhildur Ólafsdóttir fyrrverandi skólastjóri skólans sem hafði brennandi áhuga á útikennslu og sá í henni mikla möguleika. Aðventuhátíðin hefur þróast með tímanum og í dag ganga allir til verks eins og vel smurð vél. Allt ytra skipulag er í höndum eins kennara sem setur skipulagið inn á rafræna lausn í skýi. Umsjónarkennarar sjá um að raða nemendum í hópa. Allir kennarar skólans skipta með sér ábyrgð á stöðvum og undirbýr hvert kennarateymi sína stöð, finnur til þau gögn sem þarf og sér til þess að allt sé klappað og klárt á sjálfri hátíðinni.
Nemendum er skipt í hópana þvert á aldur en 10. bekkingar sjá um að vera hópstjórar í hverjum hópi. Nemendur skólans eru um 400 og eru hóparnir 24. Átta mismunandi stöðvar voru í ár, hver þrískipt en alltaf er lagt upp með að þær séu fjölbreyttar. Nú var boðið upp á þjóðdansa, kubb, sögur og söng, folf, eldstöð með pylsum og sykurpúðum til að grilla, þrautastöð og söngleikjastöð og spurningakeppni. Unnið er á hverri stöð í um 20 mínútur og svo skipt eftir ákveðnu kerfi.
Nú var boðið upp á þjóðdansa, kubb, sögur og söng, folf, eldstöð með pylsum og sykurpúðum til að grilla, þrautastöð og söngleikjastöð og spurningakeppni.
Það er ótrúlega gaman að upplifa hvað nemendur setja sig vel inn í skipulagið og hvað allt gengur vel fyrir sig og án árekstra. Lykillinn að því er líklega sá að kennarar eru búnir að undirbúa nemendur vel, hópstjórar búnir að leggjast yfir kort af lóðinni og vita vel hvert þeir eiga að leiða hópinn næst. Allir hóparnir eru númeraðir og skipulagið er sett upp í gluggum hringinn í kringum skólann svo auðvelt er að finna hópa nemenda ef þeir t.d. eru of seinir. Það kom sér t.d. afar vel að kennarar yngstu nemendanna höfðu skrifað númerið á hópnum þeirra á handarbak nemendanna og þá var auðvelt að koma þeim í réttan hóp á degi tvö.
Á aðventuhátíðinni hafa allir ákveðin hlutverk, allir hafa eitthvað að gera og allir eru virkir allan tímann. Það er yfir okkur mikil lukka því aðeins einu sinni hefur þurft að fresta hátíðinni um viku vegna mikilla rigninga. Í Covid fárinu í fyrra gáfum við ekkert eftir, við héldum hátíð en hún var minni í sniðinu og bekkirnir héldu sér en nemendum var ekki dreift í hópa þvert á aldur. Það heppnaðist vel en við fundum aftur alvöru töfra aðventuhátíðarinnar þegar við gátum haft hana með hefðbundnu sniði þetta árið.
Álftamýrarskóli stendur við stærstu umferðargötur landsins með minni umferðargötur allt í kring. Stundum segjum við að hann standi á stærstu umferðareyju borgarinnar og einhverjir myndu sjálfsagt halda því fram að hann væri ekki vel til þess fallinn að sinna útikennsluverkefnum af þessum sökum. Skólalóðin okkar er hins vegar frábær og hefur upp á margt skemmtilegt að bjóða, við eigum smá trjálund á lóðinni sem við köllum skóginn og svo eru tveir innigarðar sem við nýtum þessa daga og koma sér vel.
Það er mikilvægt að nemendur læri að nýta umhverfi sitt á fjölbreyttan og skapandi hátt og njóta þess að vera úti, líka þegar þeir búa í miðri borg.