Aðgerðir í loftslagsmálum brýnni en nokkru sinni

Fréttir|1. nóvember 2021

Alþjóðasamtök kennara segja aðgerðir í loftslagsmálum brýnni en nokkru sinni fyrr. Samtökin hvetja ríkisstjórnir heims til að standa við skuldbindingar er varða menntun og sjálfbæra þróun.

Alþjóðasamtök kennara (Education International) skora á ríkisstjórnir heims og standa við skuldbindingar um menntun og sjálfbæra þróun sem getið er í Parísarsamkomulaginu. Samtökin sendu frá sér yfirlýsingu í morgun og er tilefnið að sjálfsögðu Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna sem (COP256) nú stendur yfir í Glasgow. 

Yfirlýsing EI

Loftslagsvandinn er stærsta ógn sem mannkynið og plánetan okkar standa frammi fyrir. Þar sem lítill tími er til að snúa núverandi þróun við og halda hækkun á hitastigi jarðar undir +1,5 eru loftslagsaðgerðir brýnni en nokkru sinni fyrr. 

Menntun verður að taka mið af þessu til að styðja við baráttu gegn loftslagsbreytingum og réttlát umskipti í átt að sjálfbærum heimi. 

Nemendur eiga rétt á að öðlast þá þekkingu, færni og viðhorf sem nauðsynleg eru til að viðhalda umhverfinu fyrir núverandi og komandi kynslóðir og þeir eiga rétt á menntun sem undirbýr þá fyrir atvinnulíf í grænu hagkerfi. Það er kominn tími til að sameinast um að byggja upp þekkingu í menntakerfi, samfélagi og hagkerfi – á sama tíma og við drögum verulega úr vistspori okkar. 

Education International, rödd kennara á heimsvísu, skorar hér með á allar ríkisstjórnir í heiminum að standa við skuldbindingar sínar varðandi menntun um loftslagsmál og menntun til sjálfbærrar þróunar sem fram koma í Parísarsamkomulaginu (12. grein) og heimsmarkmiðum til ársins 2030 um sjálfbæra þróun (markmið 4.7, 12.8 og 13.3).

Þar liggur fagleg framtíðarsýn um vandaða menntun um loftslagsbreytingar og stefnurammi sem nauðsynlegur er til að hrinda henni í framkvæmd.