Aðgerðaráætlun nýrrar menntastefnu kynnt

Fréttir|24. september 2021

Áætlunin tekur til fyrstu þriggja ára tímabilsins

Fyrsta aðgerðaráætlun fyrir nýja menntastefnu hefur verið lögð fram og er hún unnin á grundvelli ályktunar Alþingis. Hún tekur til fyrstu þriggja ára tímabilsins og eru meginaðgerðir þessar:

  • Heildstæð skólaþjónusta byggð á þrepaskiptum stuðningi sem styður við nám og farsæld barna og ungmenna.
  • Skólaþróun um land allt.
  • Markviss stuðningur við nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
  • Fjölgun kennara með leyfisbréf.
  • Hæfni fagstétta í skólastarfi.
  • Gagnrýnin hugsun, sköpun og skilningur.
  • Mótun hæfnistefnu Íslands í virku samráði.
  • Raddir unga fólksins – virkt nemendalýðræði á öllum skólastigum.
  • Vönduð náms- og kennslugögn fyrir allt menntakerfið

Skólaþróunarstyrkir til allra

Á Skólaumbótaspjallinu má lesa eftirfarandi ummæli Ingva Hrannars Ómarssonar, sérfræðings hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu: „Persónulegar finnst mér vert að benda á aðgerð #2 (Skólaþróun um land allt!) sem gerir ráð fyrir skólaþróunarstyrkjum til allra leik-, grunn- og framhaldsskóla í landinu! Ekki samkeppnissjóður, heldur að allir fái úthlutað og samvinna í fyrirrúmi og traust til fólksins á vettvangi til að meta þörfina og þróa starfið.“

 

Ráðgefandi stefnuhópur

Aðgerðaráætlunin var unnin í samstarfi helstu hagsmunaaðila en þeir eru:

  • Arnór Guðmundsson, Menntamálastofnun
  • Derek Allen, Landsambandi íslenskra stúdenta
  • Fanney Dóróthea Halldórsdóttir, Grunni – félagi fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa
  • Hildur Björgvinsdóttir, Sambandi íslenskra framhaldsskólanema
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, Skólameistarafélagi Íslands
  • Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Samtökum atvinnulífsins
  • Kolbrún Þ. Pálsdóttir, Samstarfsnefnd háskólastigsins
  • Ragnar Þór Pétursson, Kennarasambandi Íslands
  • Renata Emilsson Peskova, Móðurmáli – samtökum um tvítyngi
  • Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, Heimili og skóla – Landsamtökum foreldra
  • Svandís Ingimundardóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Tryggvi Thayer, sérfræðingur í framtíðarkennslu

 

Fyrsta aðgerðaráætlun Menntastefnu til ársins 2030

Frétt á vef Stjórnarráðsins