Aðdáunarverð samstaða kennara allra skólastiga

Fjölmennt lið verkfallsvarða var við leikskólann Ársali á Sauðárkróki í morgun en þar hafði foreldrum verið tjáð að börn mættu mæta í skólann. Verkfall hófst hins vegar í leikskólanum á miðnætti.
Fjölmenn verkfallsvarsla var við leikskólann Ársali á Sauðárkróki í morgun. Verkfall hófst í skólanum á miðnætti sem og í átta öðrum skólum.
Formaður Félags leikskólakennara, Haraldur Freyr Gíslason, var meðal þeirra sem stóðu vaktina við Ársali. Auk heimafólks voru mættir kennarar úr Lundarskóla á Akureyri til að aðstoða við verkfallsvörsluna.
Haraldur segir að ljóst hafi verið í gær að sveitarfélagið Skagafjörður ætlaði ekki að virða viðmiðunarreglur KÍ og vísaði þar í tölvupóst sem foreldrar í bænum fengu í gær. Þar var tilkynnt að skerðing yrði á starfsemi leikskólans en lögð áhersla á að „barnið mætti mæta í skólann".
Þetta segir Haraldur ekki leyfilegt enda afstaða Kennarasambandsins skýr; annað starfsfólk getur ekki gengið í störf kennara sem eru í verkfalli. Hann kveðst afar ósáttur við viðbrögð sveitarfélagsins.
Þá segir hann verkfallsverði hafa rætt við foreldra sem tóku tíðindunum með stóískri ró.
„Verkallsvarslan gekk mjög vel og það var aðdáunarvert að sjá samstöðuna í kennarahópnum. Þarna voru kennarar allra skólastiga og skólagerða komnir saman til að verja störf kennara í leikskóla. Þetta var alveg stórkostlegt," segir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara.
Verkföll í níu skólum
Verkföll hófust í þremur öðrum leikskólum í morgun; Leikskóla Seltjarnarness, Drafnarsteini í Reykjavík og Holti í Reykjanesbæ. Ekki kom til kasta verkfallsvarða í þeim leikskólum.
Auk þessu eru verkföll hafin í Áslandsskóla í Hafnarfirði, Laugalækjarskóla í Reykjavík, Lundarskóla á Akureyri, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Tónlistarskóla Ísafjarðar.