Aðalheiður gefur kost á sér
Fréttir|15. janúar 2014
Aðalheiður Steingrímsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér til varaformanns Kennarasambands Íslands. Aðalheiður hefur verið formaður Félags framhaldsskólakennara frá árinu 2005 og lætur af störfum formanns á aðalfundi FF í mars 2014.
Framboðsnefnd hefur auglýst eftir tilnefningum til varaformanns og skal þeim skilað eigi síðar en á miðnætti í kvöld, 15. janúar.
Nöfnum frambjóðenda fylgi: kennitala, heimilsfang, starfsheiti, símanúmer, vinnustaður, netfang og mynd. Tilnefningar skal senda Stefáni Andréssyni, formanni framboðsnefndar, í tölvupósti á eftirfarandi netföng:stand@fb.is eða stand@mi.is. Kosningu skal lokið eigi síðar en 19. febrúar næstkomandi.