Aðalfundur Samlífs 2025

Aðalfundur Samlífs Aðalfundur Samlífs, samtaka líffræðikennara verður laugardaginn 18. janúar 2025 kl. 12:00 í Alvar Aalto sal, Norræna hússins. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Fundarsetning 2. Skýrsla stjórnar Samlífs fyrir árið 2024 3. Reikningar Samlífs fyrir árið 2024 4. Kjör stjórnarfólks 5. Önnur mál 6. Súpa og brauð 7. Fræðsluerindi Sesselju Silju Ómarsdóttur um líftæknilyf (sjá ágrip) 8. Fundarslit Vegna veitinga er mikilvægt að skrá sig með því að senda póst á liffraedikennarar@gmail.com og staðfesta mætingu fyrir 15. janúar 2025 Sesselja Ómarsdóttir – Cand.Pharm., Ph.D., EMBA Sesselja Ómarsdóttir er lyfjafræðingur, prófessor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og nýráðinn forstjóri líftæknifyrirtækisins Genís. Hún hefur víðtæka reynslu af þróun og framleiðslu líftæknilyfja og starfaði í rúm 9 ár hjá Alvotech, þar sem hún gegndi ýmsum stjórnunarstöðum. Líftæknilyf eru flóknar stórsameindir sem eru framleiddar með erfðatækni í lifandi frumum. Þau hafa gjörbylt meðferð margra alvarlegra sjúkdóma, svo sem krabbameins, sjálfsofnæmissjúkdóma og hormónaskorts. Þróun þeirra er krefjandi ferli sem felur í sér val á frumum til framleiðslu, erfðabreytingar til að tryggja rétta próteinmyndun, stýringu á ræktunarskilyrðum og hreinsun, auk umfangsmikilla efna- og virknigreininga til að tryggja hreinleika og virkni lyfjanna. Virkni og öryggi þeirra er fyrst prófuð á rannsóknarstofum, stundum í dýralíkönum, og síðar í klínískum rannsóknum. Skráning líftæknilyfja krefst ítarlegrar gagnaöflunar, og lyfjastofnanir eins og FDA og EMA setja strangar reglur til að tryggja öryggi og verkun lyfjanna áður en þau koma á markað. Líftæknilyf hafa skapað mikil tækifæri fyrir nýsköpun í lyfjaiðnaði á Íslandi. Með öflugu rannsóknarumhverfi og uppbyggingu hátæknifyrirtækja hefur Ísland öðlast alþjóðlega viðurkenningu í þróun og framleiðslu líftæknilyfja, sér í lagi líftæknilyfjahliðstæða (e. biosimilars), sem styrkir bæði vísindastarf og efnahagslega framtíð landsins.