Aðalfundur og fyrirlestur um skemmtilegri útiveru

Hver hefur ekki áhuga á að gera góða útiveru í leikskólanum skemmtilegri og áhugaverðari fyrir bæði starfsfólk og börn.
Þriðjudaginn 20. apríl 2021 kl. 17-18 býður Faghópur um skapandi leikskólastarf upp á netfyrirlestur Hörpu Kolbeinsdóttur deildarstjóra í leikskólanum Stekkjarási í Hafnarfirði þar sem hún fjallar um það hvernig starfsfólk leikskóla getur stuðlað að hvetjandi námsumhverfi á leikskólalóð.
Harpa Kolbeinsdóttir vann að starfendarannsókn í leikskólanum Stekkjarás, skólaárið 2019 – 2020. Markmið starfendarannsóknarinnar var að byggja ofan á, viðhalda og deila þekkingu á útinámi innan starfsmannahópsins. Einnig var markmiðið að nota skráningar á leik barna á útisvæði til þess að efla starfsmannahópinn í að bregðast við þörfum barnanna og stuðla að hvetjandi námsumhverfi á leikskólalóðinni. Helstu niðurstöður voru þær að verkefni af þessu tagi er áskorun fyrir starfsfólk sem er ekki vant vinnubrögðum sem fylgja starfendarannsóknum. Starfsfólk fann samt sem áður starfsánægju af því að takast á við krefjandi verkefni og gera það saman sem hópur. Í rannsóknarferlinu lærði starfsfólkið að opna augun betur til að sjá hvað á sér stað í útiverunni. Það fór að hlusta betur til að heyra í hvernig leikjum börnin voru og skráningarnar gerðu þeim kleift að lesa aftur og kafa dýpra ofan í leikinn á lóðinni.
Á undan erindi Hörpu verður haldinn aðalfundur Faghópsins og hefst hann kl. 16:45.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Lagabreytingar
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
Að þessu sinni vantar okkur einn stjórnarmann, en aðrir stjórnarmenn hafa áhuga á að vera áfram, en ef fleiri vilja fá að starfa fyrir Faghópinn er það velkomið. Það er mjög áhugavert og skemmtilegt að vera í stjórn Faghópsins.
Fyrirlesturinn fer fram á þessari slóð sem best er að opna í Chrome vafra og eru allir velkomnir https://meet.google.com/nzq-baoh-dki
Stjórn Faghóps um skapandi leikskólastarf
Nánari upplýsingar á listgreinakennarar@gmail.com
