Aðalfundur FF: Virðing, samstaða og fagleg orðræða

Fréttir|26. apríl 2018

Guðríður kom inn á stöðu félagsins en á fundinum 2014 var niðurstaðan sú að það þjónaði hagsmunum þess að vera innan Kennarasambands Íslands, bæði kjaralega og faglega.

Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, setti aðalfund félagsins í morgun á Grand Hóteli Reykjavík. Hún rifjaði upp í máli sínu stöðuna fyrir fjórum árum þegar hún tók við sem formaður en á þeim tímapunkti voru félagsmenn í miðju verkfalli. Kjarasamningurinn sem gerður var það ár var samþykktur af um 90% félagsmanna. Nú er aftur gerður kjarasamningur inn í miðjan aðalfund og verður hann kynntur á fundinum. 

Guðríður kom inn á stöðu félagsins en á fundinum 2014 var niðurstaðan sú að það þjónaði hagsmunum þess að vera innan Kennarasambands Íslands, bæði kjaralega og faglega. Hún lagði áherslu á orðræðuna innan félagsins: „Við eigum að berjast fyrir bættum kjörum og starfsaðstæðum með málefnalegri orðræðu. Við eigum að byggja kjarabaráttu okkar á gögnum og hagtölum en ekki hrópum og köllum með hnefann á lofti. Við erum menntastétt og viljum fá þá menntun metna til launa,“ sagði Guðríður. Hún vakti athygli á að mikil vakning er í samfélaginu og virðing fari vaxandi fyrir kennarastarfinu. Loks benti umræðan til þess að íslenskt samfélag ætli að setja menntun í öndvegi.

„Kennarastarfið krefst sterkrar sjálfsvitundar og þess að eiga góð samskipti við alla sem koma að menntasamfélaginu,“ sagði Elna Katrín Jónsdóttir, fyrrverandi forystukona KÍ til marga ára, á setningu aðalfundarins í morgun. Henni var samstaða og virðing hugleikin og að það sem tengdi félagsmenn saman vræi kennarastarfið og eðli þess, óháð aldri nemenda eða því hver ræki skólana. Elna sagði kennarastéttina sterkari saman enda væri þetta ein stétt. Mikilvægt væri að félagsmenn hafi vilja og áhuga á að bjóða sig fram til trúnaðarstarfa og að það væri aðlaðandi að starfa fyrir félagið. Gagnrýnin umræða er nauðsynleg en það skiptir öllu máli að fulltrúar ólíkra sjónarmiða sýni kurteisi og virðingu í ræðu og riti, sagði Elna. 

Fagleg orðræða skiptir alltaf meira og meira máli nú á tímum samfélagsmiðla, sagði Reynir Þór Eggertsson, fv. stjórnarmaður í FF, sem ávarpaði fundinn. Reynir Þór sagði framsetningu á skoðunum mikilvæga og það væri ávallt betra að finna leiðir til að vinna saman þó svo að fólk væri ósammála um einstaka hluti. Hættan vræi sú að réttmæt gagnrýni týnist í síendurteknu þrasi og leiðindum.

 

MYNDIR FRÁ SETNINGU FUNDARINS Á FACEBOOK