Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara

Fréttir|8. janúar 2014

Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara 2014 verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík, 20. - 21. mars nk.
Samkvæmt 7. grein laga FF er aðalfundur Félags framhaldsskólakennara haldinn þriðja hvert ár. Aðalfundur hefur æðsta vald í málum félagsins, sbr. þó 24. gr. þessara laga.

Á aðalfundi eiga sæti og með atkvæðisrétti stjórn, samninganefnd, skólamálanefnd, kjörstjórn FF, einn fulltrúi frá hverri félagsdeild með allt að 50 félagsmenn og einn fulltrúi til viðbótar fyrir hverja byrjaða 50 félagsmenn deildarinnar umfram þá tölu. Kjörtímabil þeirra er á milli reglulegra aðalfunda. Þar sem ekki er starfandi félagsdeild skulu félagsmenn FF á vinnustaðnum kjósa úr sínum hópi fulltrúa skv. nánari ákvörðun kjörstjórnar FF og stjórnar FF, sbr. 9. grein laga félagsins.

Til aðalfundar skal boðað bréflega með a.m.k. 6 vikna fyrirvara. Tillögur til umfjöllunar á aðalfundi þurfa að berast stjórn félagsins eigi síðar en 4 vikum fyrir aðalfund, sbr. þó 25. gr. laga félagsins. Aðalfundargögn skulu send út með minnst þriggja vikna fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað.

Aðalfundur félagsins er opinn öllum félagsmönnum.

Aðalfundargögnum verður komið fyrir á vef FF.

Á dagskrá aðalfundarins skulu a.m.k. vera þessir liðir samkvæmt 8. grein laga FF:

Skýrsla stjórnar

  1. Ársreikningar félagsins og Vísindasjóðs FF og FS
  2. Stjórnarskipti
  3. Lagabreytingar
  4. Kosning fulltrúa FF í stjórn KÍ
  5. Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna reikninga og eins til vara
  6. Kosning fulltrúa í samninganefnd
  7. Kosning formanns skólamálanefndar
  8. Kosning tveggja fulltrúa og eins til vara í stjórn Vísindasjóðs
  9. Kosning kjörstjórnar
  10. Kosning uppstillingarnefndar og í önnur trúnaðarstörf sem aðalfundur ákveður
  11. Fjárhagsáætlun fyrir næsta kjörtímabil
  12. Önnur mál


Reykjavík 6. janúar 2014
F.h. stjórnar Félags framhaldsskólakennara
Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður