Aðalfundur FDK 2020

Boðað er til aðalfundar Félags dönskukennara, mánudaginn 10. febrúar, klukkan 17:30 í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Fundurinn verður haldinn í Sunnusal á 3.hæð skólans (efsta hæðin). Besta aðkoman er við Austurberg um gamla aðalinnganginn, beint upp tröppurnar og til vinstri.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundastörf og auk þess er tillaga um breytingu á lögum félagsins.
Lögð er til breyting á 4. grein. Þar stendur:
"4. gr.
Stjórn félagsins skipa 7 * menn; formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og 3 meðstjórnendur. Skulu þeir kosnir á aðalfundi, formaður sérstaklega. Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skulu stjórnarmenn skipta með sér verkum. Enginn má sitja lengur i stjórn, í senn, en 5 ár en taki sitjandi stjórnarmaður að sér formennsku í félaginu skal þó heimilt að framlengja stjórnarsetu hans úr 5 í 7 ár."
*Tillaga að breytingu: ... 7 aðilar, ..... sem allir skulu vera fagmenntaðir dönskukennarar.
Hlökkum til að sjá sem flesta,
Góð kveðja,
Brynja & stjórn FDK