Aðalfundur Faghóps um skapandi leikskólastarf 2022

Fréttir|10. apríl 2022
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Aðalfundur Faghóps um skapandi leikskólastarf verður haldinn fimmtudaginn 5. maí nk. kl. 17 hjá Kennarasambandi Íslands, Borgartúni 30, 105 Reykjavík.  Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum mun hún Anna Gréta Guðmundsdóttir leikskólakennari og listasmiðjustjóri í leikskólanum Sæborg halda erindi sem hún hefur nefnd Fagurfræði í leikskóla. Þið eruð öll velkomin á fyrirlestur Önnu Grétu og það er ókeypis inn.

Aðalfundur Faghóps um skapandi leikskólastarf verður haldinn fimmtudaginn 5. maí nk. kl. 17 hjá Kennarasambandi Íslands, Borgartúni 30, 105 Reykjavík. 

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum mun hún Anna Gréta Guðmundsdóttir leikskólakennari og listasmiðjustjóri í leikskólanum Sæborg halda erindi sem hún hefur nefnd Fagurfræði í leikskóla. Anna Gréta var m.a. tilnefnd til Menntaverðlauna árið 2021 fyrir lýðræðislegt og skapandi leikskólastarf. Anna Gréta hefur fagleg sjónarmið í forgrunni í öllu sínu starfi. Hún er með næmt listrænt auga og hefur góða skipulagshæfni. Hún hefur verið listasmiðjustjóri í Sæborg lengi og ber listasmiðjan mikil merki um fagurfræðilega hugsun hennar.

Þið eruð öll velkomin á fyrirlestur Önnu Grétu og það er ókeypis inn.