Aðalfundur Baklands Listaháskóla Íslands 2016
Fréttir|5. apríl 2016
Boðað er til aðalfundar Baklands Listaháskóla Íslands, þriðjudaginn 19. apríl nk. kl 17.00 í sal LHÍ, norðanmegin á lóð við Sölvhólsgötu.
Dagskrá aðalfundarins er svohjlóðandi:
- Kynning á stefnumörkun Listaháskóla Íslands, sýn og markmiðum. Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
- Hefðbundin aðalfundarstörf
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar Baklandsins fyrir liðið starfsár
- Skýrsla um starfsemi LHÍ / Stjórnarmenn LHÍ tilnefndir af Baklandinu
- Kosning sjö stjórnarmanna sbr. gr. 3.2.
- Breytingar á samþykktum
- Önnur mál / Ákvörðun félagsgjalda
Með fundarboði þessu fylgja núgildandi samþykktir fyrir Bakland Listaháskóla Íslands ásamt breytingatillögum stjórnar sem teknar verða fyrir á fundinum.
Stjórn Baklandsins
Samþykktir fyrir Bakland LHÍ frá árinu 2015
Tillögur að breyttum samþykktum fyrir Bakland LHÍ.