Aðalfundur 2024

Aðalfundur Faghóps um skapandi leikskólastarf 2024 verður haldinn í leikskólanum Öldunni fimmtudaginn 18. apríl kl. 17.
Aðalfundur Faghóps um skapandi leikskólastarf 2024 verður haldinn í leikskólanum Öldunni fimmtudaginn 18. apríl kl. 17.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf:
-Kosning fundarstjóra og fundarritara
-Skýrsla stjórnar lögð fram
-Reikningar lagðir fram til samþykktar
-Lagabreytingar
-Kosning stjórnar
-Önnur mál
Þess má geta að engar breytingar verða á starfsreglum Faghópsins að þessu sinni og ekki þarf að kjósa í stjórn nema einhverjir vilji bjóða sig fram. Allir í stjórn gefa aftur kost á sér.
Vonum að félagsmenn taki því vel að við skellum saman heimsókn á Hvolsvöll og aðalfundi. Ef ósk um rafrænan aðalfund koma fram verðum við við því erindi. Hægt er að senda stjórn skilaboð á netfangið listgreinakennarar(@)gmail.com
