Að yrkja á íslensku – samkeppni í tilefni Dags leikskólans

Blásið hefur verið til samkeppni meðal leikskólabarna í tilefni Dags leikskólans sem haldinn verður hátíðlegur, venju samkvæmt, 6. febrúar næstkomandi.
Blásið hefur verið til samkeppni meðal leikskólabarna í tilefni Dags leikskólans sem haldinn verður hátíðlegur, venju samkvæmt, 6. febrúar næstkomandi. Verkefnið er að „yrkja á íslensku“ á hvaða formi sem hentar leikskólabörnum best. Hægt er að senda ljóð, vísur, sögur og svo framvegis – efnistök eru frjáls.
Samkeppnin er liður í vitundarvakningu sem Kennarasamband Íslands hratt af af stað á Alþjóðadegi kennara á liðnu hausti. Þá var ákveðið að setja móðurmálið í forgang og vinna að verndun og eflingu þess.
Dómnefnd skipa Haraldur Freyr Gíslason, Sigrún Birna Björnsdóttir og Steinunn Inga Óttarsdóttir.
Veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestu textana á Degi leikskólans.
Skilafrestur er til 18. janúar 2019. Netfang samkeppninnar er dagurleikskolans@ki.is.
Lesið um Dag leikskólans hér.