Að smíða fallegt og gott borð

Fréttir|10. mars 2022
Pistill

Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ, skrifar leiðara Skólavörðunnar.

Vorið 1977 geisaði umræða um samræmd próf í íslensku samfélagi. Landspróf höfðu verið lögð niður ári áður og samræmd próf voru haldin í fyrsta skipti þetta ár. Ýmis vandkvæði höfðu fylgt hinum nýju prófum og einhverjir gallar voru við gerð og framkvæmd þeirra. Nemendaráð Hagaskóla sendi frá sér yfirlýsingu eftir prófin þar sem þess var krafist að niðurstöður í ensku og stærðfræði yrðu ógiltar enda hefði nemendaráðinu borist fregnir af því að Vesturbæingar hefðu setið undir strangari framkvæmd prófanna en sumir jafnaldrar þeirra.

Ólafur Proppé skrifaði prófunum til varnar og nefndi að þótt vissulega hefðu komið upp margvísleg vandamál í fyrstu gerð prófanna væru samræmd próf framför frá því sem áður hefði verið. Fyrir það fyrsta væri verið að reyna að móta námsmat í skólum í anda þeirra grunnskólalaga sem giltu í landinu. Þar væri menntun miklu meira og æðra en velgengni í bóklegum prófum. Raunar væri skóli sem tæki um of mið af því að meta bóklega stöðu nemenda „leiðinlegri“ en hann þyrfti að vera og þar væri ákveðinn hópur nemenda settur í þá stöðu að hljóta í sífellu neikvæðan dóm annarra.

Ólafur benti enn fremur á að þótt umræða um skólamál væri fagnaðarefni þá yrði hún að vera upplýst og fólk yrði að gera sér grein fyrir muninum á prófi sem mældi hvort nemandi hefði náð markmiði í námi sínu og prófi sem hannað væri til að bera nemendur saman innbyrðis. Hann dró fram eigin efasemdir um gildi námsmats sem hefði það eina markmið að raða nemendum í röð, t.d. til að auðvelda framhaldsskólum að velja úr umsækjendum. Þá hefðu fæstir gagnrýnendur prófanna horft til grundvallaratriðis í breytingu námsmatsins: Skólaeinkunna. Aukið vægi var gefið skólunum sjálfum, nemendum og kennurum til að uppfylla markmið námsins út frá hæfileikum og áhuga hvers og eins.

Hann sagði umræðuna líklega best skiljanlega þegar horft væri til þess hve yfirborðskennda sýn þjóðin hefði á menntun. Nú, þegar fyrirsjáanlegt er að samræmt námsmat verði hannað upp á nýtt, langar mig að draga fram nokkur orð úr grein sem Ólafur Proppé skrifaði í Morgunblaðið, m.a. af því tilefni að skólastjóri Hagaskóla hafði í sama miðli tekið undir gagnrýni nemendaráðsins, snemma árs 1977:

„Mig furðar oft á hvernig viðhorfum fólks til þess hvað sé menntun og hvað sé greind er háttað hér á landi. Algengar eru hugmyndir um að bóklegt nám sé meira virði en verklegt — Að meiri „greind“ þurfi til að sinna bóklegum greinum, ég tala nú ekki um til að þjóna svonefndum vísindum, — heldur en til að smíða fallegt og gott borð eða að reka gott bú. En ef við áttum okkur m.a. á hvert hlutverk samræmdra prófa hefur verið og er, verður þetta viðhorf skiljanlegra.“

 

Leiðari Ragnars Þórs birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2022.