Að ná farsæld í störfum

Fréttir|12. desember 2022
Pistill

„Við finnum það öll að samfélagið ber traust til skólanna sinna og væntir mikils af þeirra störfum enda snertir skólastarf nær öll íslensk heimili á einhvern hátt, jafn ólík og þau eru," skrifar Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í leiðara Skólavörðunnar.

Í gegnum árin höfum við Íslendingar oft notað líkingar úr málfari þeirra atvinnuvega sem voru ríkjandi á okkar indælu eyju í gegnum aldirnar. Á þessum tímapunkti langar mig, sem nýjan liðsmann á skrifstofu Kennarasambands Íslands, að grípa til þeirrar venju og lýsa gleði minni yfir því að hafa verið ráðinn í þá áhöfn sem stýrir KÍ-skútunni fyrir hönd allra íslenskra kennara. Það að fá að standa við stýrið þar er mikill heiður en um leið verkefni sem kallar á mikla ábyrgð og gerir kröfur um forystu.

Áherslur í forystu nútímans snúa að leiðtogafræðum og kannski er kominn tími á að hvíla orðið stjóri þegar kemur að yfirmönnum og nota í þess stað einmitt orðið leiðtogi, sá sem leiðir hóp. Það hefur margsýnt sig sem árangursríkasta leiðin til að ná farsæld í störfum og það kallar eftir samábyrgð og einlægum vilja til að ná árangri sem hluti hópsins en ekki standa utan við hann. Þau vinnubrögð kalla á samtal innan hópsins og það á svo sannarlega við um verkefnisstjórnina á KÍ-skútunni. Við kennarar búum yfir ólíkum eiginleikum, viðfangsefnin eru margvísleg eftir skólastigum og skólagerðum og umhverfi hvers skóla og kennara sannarlega ólíkt. Við verðum að líta á þá staðreynd sem ákjósanlega fyrir okkur til að efla menntun og kennslu, vera dugleg að dýpka þekkingu okkar á starfinu og viðfangsefnum þess og leita eftir ferskum hugmyndum hjá samstarfsfólki innan skólanna eða við aðra skóla.

Umræða um íslenskt skólakerfi hefur verið töluverð nú um nokkurt skeið. Líklegt má telja að það kastljós sem beint var að skólunum í Covid-19 faraldrinum, þar sem árangurinn var á heimsmælikvarða – fyrst og síðast vegna æðruleysis og metnaðar íslenskra kennara, sem ákveðið upphaf almennrar umræðu um skólastarf. Á sama tíma hafa málefni barna almennt verið mikið í umræðunni í sam­félaginu þar sem skýr krafa hefur verið um að öll umgjörð íslenskra barna verði sú allra besta.

Það er vissulega mikið gleðiefni að íslenskt skólastarf fái athygli, og það eigum við svo sannarlega skilið, en á köflum hefur umræðan farið töluvert út um hinn víða völl. Einstök atriði eða afmarkaðir þættir skólastarfs eru þá dregnir fram og því miður stundum teiknaðir þannig upp að myndin er neikvæð og allt á blússandi niðurleið. Það er mjög mikilvægt að við kennarar tökum þátt í þessari umræðu á uppbyggilegan hátt og nýtum almennari áhuga á okkar starfi til að kalla eftir þeim umbótum sem við teljum nýtast menntun nemenda okkar best en einnig að varpa ljósi á þann metnað og framsækni sem er að finna hjá okkur.

En það eru sérfræðingarnir, kennararnir sjálfir, sem leiða mikilvægasta þáttinn í skólastarfi, vinnuna í skólastofunni með hverjum hópi og hverjum nemanda.

Kennarastarfið er nefnilega mikilvægasta starf hvers samfélags. Kennarinn er leiðtogi þess hóps sem byggir samfélag framtíðar, bæði þess sem er nær og þess sem fjær er. Um hann gilda nákvæmlega sömu áherslur og hjá skipstjóranum í KÍ-brúnni. Kennarinn leiðir hóp í átt að því verkefni sem haldgóð og uppbyggileg menntun er. Kennarinn ber líka ábyrgð á líðan síns hóps meðan á verkefninu stendur og það er undir kennaranum komið að rækta og efla hvern einstakling hópsins í leik og starfi. Kennarastarfið er sérfræðistarf og öll umræða um það verður að vera byggð á grunni kröfunnar um að rödd sérfræðinganna heyrist hærra en annarra, sem vissulega geta þó haft ákveðna sýn á skólamál eða annan snertiflöt við nemendur. En það eru sérfræðingarnir, kennararnir sjálfir, sem leiða mikilvægasta þáttinn í skólastarfi, vinnuna í skólastofunni með hverjum hópi og hverjum nemanda.

Kennarasamband Íslands hefur klárlega það hlutverk að sjá til þess að raddir kennara og leiðtoga þeirra, skólastjórnenda, fái pláss við umræðuborðið. Ég trúi ekki endilega á að borðsendinn eigi að vera staður þess sem leiðir orðræðuna en í myndlíkingunum er það svo að rödd kennara á að leiða orðræðuna um skólastarf og menntun. Þeir eiga að sitja við borðsendann því tími þess að talað sé um kennara en ekki við þá er að baki.

Við finnum það öll að samfélagið ber traust til skólanna sinna og væntir mikils af þeirra störfum enda snertir skólastarf nær öll íslensk heimili á einhvern hátt, jafn ólík og þau eru. Við fögnum því hlutverki og ætlum svo sannarlega að sjá til þess að íslenskir leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólar fái að blómstra sem þeir frábæru vinnustaðir sem samfélagið kallar eftir.

Þar með er mál að leggja úr höfn, bæði á KÍ-skútunni sem og inn í Skólavörðuna sem enn á ný sýnir fram á þann metnað sem útgáfusviðið okkar leggur í vörðuna góðu.

Njótum lestursins – áfram veginn íslenskir kennarar!