Að miðla þekkingu veitir lífsfyllingu

Ásdís Arnardóttir sellókennari er Félaginn í Skólavörðunni að þessu sinni. Hún svarar þremur laufléttum og skemmtilegum spurningum.
Félaginn
Nafn: Ásdís Arnardóttir
Skóli: Tónlistarskólinn á Akureyri
Starf: Sellókennari
Ég er tónlistarkennari... Vegna þess að í gegnum tónlist er hægt að þjálfa svo margt eins og aga, einbeitingu, seiglu, skapandi hugsun og ekki síst samvinnu. Sjálf hef ég verið afskaplega heppin með kennara og það gefur mér lífsfyllingu að miðla áfram þekkingu. Sem Suzukikennari er ég í stöðugri samvinnu við nemendur og foreldra og saman þroskumst við og leitum leiða sem efla og örva.
Besta stund vikunnar er... Að mæta í heitt jóga eða rólujóga í vikulok, slaka algjörlega á og hlaða batteríin.
Þessu mundi ég vilja breyta... Ég mundi vilja efla tónmenntakennslu á landsvísu. Við sem kennum í tónlistarskólunum finnum fyrir því að tónmenntakennslu skortir víða. Það þarf að eiga sér stað samtal til að bæta úr þessu hið fyrsta.