Að miðla persónubundinni sýn með ljósmyndum

Fréttir|28. desember 2020

Eva Harðardóttir og Tinna Ottesen hafa á síðastliðnu skólaári unnið að rannsóknarverkefni sem ætlað er að stuðla að aukinni þátttöku nemenda með bakgrunn innflytjenda og flóttafólks í íslensku skólastarfi. Verkefnið var styrkt af rannsóknarsjóði KÍ og fléttast inn í doktorsverkefni Evu sem hún vinnur að á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Kveikjan að verkefninu spratt upp úr reynslu höfunda af því að starfa með fjölbreyttum hópi nemenda og kennara á ólíkum vettvangi kennslu og lista.

Samfélög um allan heim verða nú sífellt fjölmenningarlegri í kjölfar sögulegra fólksflutninga. Sá mikli menningarlegi margbreytileiki sem kemur í kjölfar fólksflutninga felur í sér tækifæri jafnt sem áskoranir í skólastarfi. Rannsóknir, bæði erlendis sem hérlendis, benda til þess að ungt fólk með bakgrunn innflytjenda og flóttafólks upplifi ýmis konar hindranir í námi sínu sem tengjast m.a. aðgengi, námsframvindu og möguleikum þeirra til þátttöku í félagsstarfi (Blöndal, Jónasson og Tannhauser, 2011; UNHCR, UNICEF og IMO, 2019; Grunfelder, Rispling, og Norlén, 2018). Þá upplifa kennarar einnig erfiðleika við að nálgast þennan nemendahóp og hafa kallað eftir sterkari stefnumótun (Eva Harðardóttir og Berglind Rós Magnúsdóttir, 2018) og fjölbreyttari aðferðum til þess að vinna með nemendum með ólíkanmenningar- og tungumálabakgrunn (Eva Harðardóttir o.fl., 2019; Hermína Gunnþórsdóttir o.fl., 2017; Herzog-Punzenberger o.fl., 2020).

Á sömu nótum sendi Kennarasambandið frá sér ályktun árið 2018 þar sem þau hvöttu stjórnvöld til þess að standa við skuldbindingar sínar samkvæmt alþjóðasáttmálum sem Ísland hefur undirgengist og tryggja að raddir nemenda af erlendum uppruna komi fram í stefnu og stuðningi við þau. Þá ályktaði Kennarasambandið einnig um mikilvægi þess að veita kennurum og skólum stuðning og ráðgjöf meðal annars með fjölbreyttari verkfærum sem snúa að skipulagi náms og kennslu með nemendum af erlendum uppruna (Kennarasamband Íslands, 2018).

Stuðningur og hvatning fyrir kennara

Verkefni Evu og Tinnu hafði bæði fræðilegt og hagnýtt markmið og var hugsað sem stuðningur og hvatning fyrir kennara til þess að mæta menningarlegum margbreytileika í starfi sínu á grunni gagnrýnina menntunarfræða – auk þess að ýta undir möguleika nemenda til þátttöku í skólastarfi. Verkefnið tók því fljótlega á sig mynd kennsluleiðbeininga sem kennarar geta nýtt til þess að nálgast námsefni sitt á nýjan hátt. Leiðbeiningarnar má nýta þvert á fög og námsgreinar og með ólíkum nemendahópum á eldri stigum grunnskóla og í framhaldsskólum. Þá var einnig talið mikilvægt að verkefnið næði með markvissum hætti utan um þann myndræna heim sem mætir ungu fólki í dag og var því ​ lögð áhersla á að nýta myndefni í bland við gagnrýnar spurningar og samræður til að efla með nemendum gagnrýnið samfélags- og myndlæsi.

Í kennsluleiðbeiningunum er stuðst við skilgreiningu og umfjöllun fræðikonunnar Vanessu Andreotti (2006, 2014) á hugtakinu ​gagnrýnið læsi eins og það birtist í námi og kennslu. Andreotti leggur áherslu á að öll þekking sé hlutdræg og ófullkomin í eðli sínu og því þurfi kennarar sífellt að leggja mat á eigin sjónarmið og annarra. Mikilvægt er að gera það án þess að segja nemendum hvað þeir eiga að hugsa eða gera og leggja frekar áherslu á að skapa rými þar sem nemendur upplifa frelsi til að greina og prófa sig áfram með ólík form tjáningar og samskipta. Aðferðir í verkefninu voru mótaðar á grunni rannsóknaraðferða sem á ensku kallast​ photovoice ​ (sjá t.d. Latz, 2017).

Í rannsóknum sem nýta aðferðir ​photovoice er lögð áhersla á nota ljósmyndir til að draga fram ólíka sýn fólks á samfélag sitt, málefni líðandi stundar og eigin afstöðu. Aðferðin hefur reynst sérlega vel í vinnu með ýmsum jaðarsettum hópum sem að öllu jafna hafa ekki sterka rödd í samfélaginu. Börn og ungmenni með stöðu innflytjenda og flóttafólks tilheyra slíkum hópi og því brýnt að styðja betur við þau á vettvangi menntunar.

Ljósmyndir hafa reynst mikilvægt tæki til tjáningar og frásagnar fyrir nemendur af erlendum uppruna í kennslu jafnt sem rannsóknum (sjá t.d. Robertson, o.fl., 2016). Hefðbundnar kennsluaðferðir byggja að verulegu leyti á skriflegri eða munnlegri frásögn og krefjast þess að nemendur búi yfir töluverðri færni í skólatungumálinu. Slíkt getur skapað óþarfa hindranir í námi og torveldað ungu fólki að bregðast við þeim námstækifærum sem þeim bjóðast innan skólans. Hér er ekki verið að draga úr mikilvægi þess að nemendur af erlendum uppruna tileinki sér færni í íslensku heldur benda á gagnsemi þess að nálgast tungumálafærni nemenda á þann veg að þeir öðlist tækifæri til að tjá sig á nýjan og skapandi hátt (Biesta, 2006). Í verkefninu er því lagt upp með að skapa vettvang fyrir nemendur til að deila og miðla skoðunum sínum með sjónrænum og merkingarbærum hætti. Hér á eftir verða gefin dæmi um þær áherslur sem birtast í leiðbeiningunum, hvernig þær endurspegla áherslur gagnrýninna menntunarfræða og nýtast nemendum með bakgrunn innflytjenda og flóttafólks sérlega vel.

Margvísleg verkefni

Kennsluleiðbeiningarnar skiptast upp í fimm kafla þar sem hver kafli inniheldur þrjá þætti sem huga þarf að. Þessir þættir eru: 1) kveikja, 2) verkefnavinna og 3) úrvinnsla. Kveikjurnar eru ekki einungis hugsaðar til þess að leggja inn mikilvæg hugtök heldur er áhersla lögð á að kennarar leiti eftir ólíkum skilningi nemenda á þeim hugmyndum og hugtökum sem tengjast efninu sem fyrir er lagt. Sem dæmi má nefna að fyrsta kveikjan sem lagt er upp með í leiðbeiningunum felst í því að hvetja nemendur til að kanna rýmið í kringum sig með nýjum hætti. Kennarar biðja nemendur um að líta í kringum sig og skoða vandlega skólastofuna eða hvert það rými sem hópurinn er í með eftirfarandi spurningar í huga:

  • Hvað má lesa úr þessu rými?
  • Er eitthvað sem vísar í fortíð eða sögu rýmisins?
  • Er skrifaðar eða óskrifaðar reglur sem gilda í rýminu?
  • Hvar er best eða verst að vera í rýminu og af hverju?

Að lesa með gagnrýnum hætti í nærumhverfi sitt getur verið mikilvægt skref til þess að tengjast samfélaginu og heiminum í heild. Kveikjan er hugsuð sem undirbúningur fyrir verkefni sem lagt er til í kennsluleiðbeiningunum. Verkefnið felst í því að biðja nemendur um að taka myndir af opinberu rými þar sem þau upplifa ​tilfinninguna að tilheyra. ​ Hugtakið​að tilheyra ​ í þessu samhengi er notað með það í huga að draga fram reynslu og upplifun nemenda í tengslum við félagslegt umhverfi þeirra og möguleika til þátttöku. Fyrir nemendur sem hafa af ýmsum ástæðum þurft að flytjast búferlum og hafa jafnvel misst tengsl við upprunasvæði, fjölskyldu og vini er afar dýrmætt að draga fram og vinna með þær tengingar sem unga fólkið bendir sjálft á í sínu nærumhverfi.

Kennsluleiðbeiningarnar leggja til margvísleg ljósmyndaverkefni þar sem nemendur taka myndir út frá ólíkum forsendum. Myndirnar eru síðan nýttar til þess að skapa persónulega frásögn eða varpa ljósi á það sem þau telja mikilvægt í eigin lífi. Vert er að taka fram að þrátt fyrir að kennsluleiðbeiningarnar leggi áherslu á að nemendur æfist í því að taka ljósmyndir er markmiðið ekki að nemendur taki „fallegar“ eða tæknilega fullkomnar myndir heldur frekar, í anda gagnrýninna menntunarfræða, að nemendur íhugi hvernig mismunandi sögulegir, menningarlegir og félagslegir þættir móta þann veruleika sem birtist nemendum á myndum hvers annars.

Á sömu nótum er lagt til að eftir hvert ljósmyndaverkefni gefist nægur tími fyrir kennarar og nemendur til að skoða myndirnar í sameiningu með aðstoð myndgreiningablaðs sem finna má í kennsluleiðbeiningunum. Myndgreiningarblaðið byggir á átta spurningum sem þróaðar voru á grunni ljósmyndarannsókna með ungu fólki (sjá t.d. Latz, 2017 og McIntyre, 2003). Spurningunum er ætlað að dýpka skilning nemenda á efninu sem um ræðir og aðstoða þau við að greina eigin hugmyndir, afstöðu og upplifanir.

  1. Hvar var þessi mynd tekin?
  2. Hvenær var þessi mynd tekin?
  3. Hvað sjáum við á myndinni?
  4. Er eitthvað á myndinni sem bara þú skilur?
  5. Hver eða hvað tilheyrir rýminu á þessari mynd?
  6. Er eitthvað sem vantar á myndina?
  7. Hvað er það mikilvægasta við myndina?
  8. Hvernig leið þér þegar þú tókst myndina?

Nemendur fanga og deila eigin reynslu

Þá er einnig mikilvægt að gefa nemendum fleiri en eitt tækifæri til að taka myndir. Ígrundun krefst alltaf tíma og með því að skapa fleiri en eitt tækifæri til að fanga og ræða eigin hugmyndir um efnið gefast á sama tíma fleiri tækifæri til að ná utan um þær fjölbreyttu og ólíku aðstæður sem ungt fólk upplifir í daglegu lífi. Andreotti, Biesta og Ahenakew (2015) benda á að sannarlega ígrundandi augnablik í kennslu með ungu fólki skapi jafnframt mestu möguleikana fyrir þau til þátttöku í samfélagi jafningja. Í þessum samskiptum verða einnig til raunveruleg tækifæri fyrir kennara til þess að læra með - og á forsendum nemenda sinna - um aðstæður þeirra og upplifanir.

Með því að nýta ljósmyndir sem skapandi form tjáningar og samskipta, má styðja við nemendur til að fanga og deila eigin reynslu og upplifunum af nærsamfélagi sínu og samfélagslegum málefnum í víðara samhengi. Með því skapast rými þar sem reynsla nemenda með bakgrunn innflytjenda og flóttafólks er tekin til greina og fær að vaxa á forsendum fjölbreytileika.

Kennsluleiðbeiningarnar fléttast á mikilvægan hátt inn í doktorsverkefni Evu sem hún vinnur í tengslum við stærra samanburðarverkefni um stöðu og reynslu ungs flóttafólks af inngildingu og borgaravitund í framhaldsskólum á Íslandi, Noregi og í Bretlandi. Verkefnið er leitt af Dr. Berglindi Rós Magnúsdóttur og Dr. Ólafi Páli Jónssyni sem starfa bæði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Kennsluleiðbeiningarnar móta grunn að þeirri aðferðafræði sem nýtt verður í rannsókninni og hafa nú þegar verið þýddar á bæði ensku og norsku til prófunar í framhaldsskólum þar í landi. Þá hefur Eva einnig ritað fræðigrein ásamt Ólafi Páli Jónssyni, þar sem þau tengja saman þær aðferðir sem fjallað er um í kennsluleiðbeiningunum við ramma alþjóðlegrar borgaravitundar í menntun (e. Global Citizenship Education) og heimspekikenningar John Dewey og Hönnu Arendt. Greinin er væntanleg til birtingar á árinu 2021.

 

Heimildir

  • Andreotti, V. (2006). Soft versus critical global citizenship education.​ Policy and Practice A Development Education Review 3(Haust), ​ 40-51.
  • Andreotti, V. (2014). Critical Literacy: Theories and Practices in Development Education. Policy & Practice: A Development Education Review (19), 12-33.
  • Andreotti, V., Biesta, G. J. J. og Ahenakew, C. (2015). Between the nation and the globe: Education for global mindedness in Finland. ​Globalisation Societies and Education, 13(2), 246-259.
  • Biesta, G. J. J. (2006). ​Beyond Learning: Democratic Education for a Human Future. London: Boulder.
  • Blöndal, S., Jónasson, J. T., og Tannhauser, A. C. (2011). Dropout in a Small Society: Is the Icelandic Case Somehow Different? Í S. Lamb, E. Markussen, R. Teese, N. Sandberg, og J. Polesel (Ritst.) School Dropout and Completion: International Comparative Studies in Theory and Policy (bls. 233-252). London: Springer.
  • Eva Harðardóttir og Berglind Rós Magnúsdóttir. (2018). "Að þreifa sig áfram í myrkrinu": Ríkjandi stefnur og straumar um ungt flóttafólk í íslensku grunn- og framhaldsskólakerfi.  Stjórnmál og Stjórnsýsla, 14(3), 183-204.
  • Eva Harðardóttir, Berglind Rós Magnúsdóttir og Jo-Anne Dillabough. (2019). Understanding the politics of inclusion, the ‘refugee’ and nation: Analysis of public policies and teachers narratives in Iceland.  International Journal of Inclusive Education.  DOI:10.1080/13603116.2019.1707306
  • Grunfelder, J., Rispling, L., og Norlén, G. (2018).​ State of the Nordic Region. Copenhagen: Nordic Council of Ministers.
  • Hermína Gunnþórsdóttir., Stephanié Barillé, og Markus Meckl. (2017). The Education of Students with Immigrant Background in Iceland: Parent's and Teachers' Voices. Scandinavian Journal of Educational Research, 63(4), 605-616.
  • Herzog-Punzenberger, B., Altrichter, H., Brown, M., Burns, D., Nortvedt, G. A., Skedsmo, G., . . . O'hara, J. (2020). Teachers responding to cultural diversity: case studies on assessment practices, challenges and experiences in secondary schools in Austria, Ireland, Norway and Turkey. ​Educational Assessment, Evaluation and Accountability, 32,​ 395-424.
  • Kennarasamband Íslands. (2018). Samþykkt um menntun og farsæld nemenda með annað móðurmál en íslensku. Sótt af: http://gamli.ki.is/tki/images/Skrar/KI/Arsfundir_og_thing/2018/Samthykktir_fra_thingi_ 018/Thing2018_samthykkt_um_menntun_og_farsaeld_nemenda_med_annad_modurma _en_islensku.pdf
  • Latz, O. A. (2017). ​Photovoice Research in Education and Beyond: A Practical Guide from Theory to Exhibition. London: Routledge
  • McIntyre, A. (2003). Through the eyes of women: Photovoice and participatory research as tools to reimagining place. ​Gender, Place and Culture: A Journal of Feminist Geography, 10 ​ , 47-66.
  • Robertson, Z., Gifford, S., McMichael, C., og Correa-Velez, I. (2016). Through their eyes: seeing experiences of settlement in photographs taken by refugee background youth in Melbourne, Australia. ​Visual Studies, 31(1), 34-49.
  • UNHCR, UNICEF og IMO. (2019). Access to education for refugee and migrant children in Europe Retrieved from https://www.unhcr.org/news/press/2019/9/5d774dbb4/unhcr-unicef-iomurgeeuropean-states-boo st-education-refugee-migrant-children.html