Að lokum
Þegar við stofnuðum Félag stjórnenda leikskóla og ég var kosinn formaður var ég alveg með það á hreinu að starfskraftar mínir myndu nýtast til valdeflingar stéttarinnar og leikskólastarfs almennt. Ég held ég hafi haldið að við myndum í krafti mikilvægi okkar vera falið að stjórna landinu. Loksins myndu rekstraraðilar skilja mikilvægi okkar og kjarasamningarnir, maður lifandi. Nú yrði þetta almennilegt.
Ég efast stundum um að það hafi verið nokkurt gagn í mér. En þegar ég fór að taka til í tölvunni minni, hef verið að því mánuðum saman án árangurs af því að það er svo margt sem rifjast upp, sé ég að það er svo margt að skoða þannig að eitthvað hefur nú verið gert þó að draumarnir hafi verið stærri en árangurinn.
Kreppan var reyndar skollin á þegar við stofnuðum félagið og við vorum farin að finna til tevatnsins þar sem skellt var á FL í kjarasamningagerð haustið áður með 20.300 kallinum, muniði. En það var sama. Við héldum þjóðfund í janúar 2011 og þar settum við fram gildin okkar. Fagmennska, samstaða og lausnaleit hafa lýst okkur leið síðan.
Síðan þá höfum við komið saman árlega á námstefnum. Fyrstu tvö árin fórum við um landið með námstefnuna en félagið okkar er af þeirri stærðargráðu, sem sagt lítið, að það var kallað eftir stórri samkomu þar sem við myndum hittast á landsvísu, fræðast og gera okkur glaðan dag. Á þessum námstefnum hefur myndast góð og mikil orka fagmennsku, samstöðu og lausnarleitar.
Smásigrar hér og þar
Kjarasamningagerðin hefur átt sína ljósu punkta þó að súrsætar séu minningarnar, því þrátt fyrir smásigra hér og þar þá er aldrei fullnaðarsigur unninn. Verst finnst mér að hafa ekki tekist að gæta hagsmuna sérfræðinganna okkar á skólaskrifstofum nógu vel. Samstarfsfólkið við samningagerðina, þ.e. stjórn og samninganefndin, hefur þó gert hverja mínútu þess virði að þrasa okkur í gegnum ferlið.
Samstarfið við Skólastjórafélag Íslands hefur líka verið gjöfult og þar hafa dropar holað steina. Við grínuðumst stundum með það að við værum í tilhugalífi fyrir sameiningu en ég held að það vanti enn svolítið upp á. En til lengri framtíðar erum við að tala um vit í því að það verði eitt stjórnendafélag og eitt kennarafélag í KÍ.
Mig langar til að nefna samráðsnefndina. Fyrsta kjörtímabilið störfuðum við eins og við höfðum alltaf gert með FL og stofnuðum svæðadeildir í öllum landshlutum. Það sýndi sig að þrátt fyrir vilja vorum við of smá fyrir svo stórt apparat og samráðsnefndin varð til. Allt hefur kosti og galla og vissulega held ég að það geti hafa verið einmanalegt að vera aðalmaður og bera hitann og þungann af starfsemi á svæðinu. En það hefur skipast svo mikið afburðafólk í þessi rúm að hugmyndin um samráðsnefnd sem aðalmótor í félaginu hefur gengið vel upp. Samráðsnefndin hittist fyrstu árin þrisvar á ári en tvisvar seinni ár þegar vélin var orðin vel smurð.
Samráðsnefndarfundirnir hafa verið haldnir hér og þar um landið og þá hafa setið stjórn, skólamálanefnd, samninganefnd og aðalmenn af svæðum. Undantekningarlaust hefur verið bæði gagn og gaman af þeim fundum. Þakka ykkur af öllu hjarta fyrir allar þær góðu stundir.
Orð eru til alls fyrst
Skólamálanefndin hefur þurft að fara í gegnum ýmis þroskaskeið en nú vona ég að í dag finnum við bestu leiðina. Verkefni skólamálanefndar eru samt alltaf uppbyggileg og gefandi. Ráðstefnur og málþing og samstarf við útlönd eru alltaf skemmtileg. Samstarf við RannUng má nefna og skólamálaráð KÍ í heild sinni. Stundum hefur nú þótt nóg um orð á þeim vettvangi en þau eru nú til alls fyrst og margt hefur áunnist.
Ég ætla ekki að telja upp öll þau verkefni sem formannsstarfið hefur fært mér. Sum hrein skemmtun og góður lærdómur eins og heimsóknir í leikskóla og á svæði um allt land.
Hagsmunagæsla fyrir einstaka félagsmenn hefur oft tekið á. En það eru of mörg dæmi um samskiptaörðugleika og allt að einelti sem brýtur fólk niður og ömurlegt að verða vitni að. Þó hefur langoftast gengið vel að ná niðurstöðum félagsmanni í hag. Tíminn sem það tekur að fá niðurstöður þegar við höfum þurft að fara í dómsmál er oft fáránlega langur og slítandi fyrir fólk að bíða eftir því. En langoftast semst þó.
Starfsþróun undirstaða fagmennsku
Sameiningarvitleysan tók líka á og enn eimir eftir af afleiðingunum þegar tugum félagsmanna var sagt upp og leikskólar sameinaðir tveir og fleiri og sumir við grunnskóla. Það voru nú meiri bjánarnir sem héldu að það kynni góðri lukku að stýra að gera þetta ofan frá í krafti valds burtséð frá faglegum ávinningi. Þó er hægt að skilja örvæntingu þeirra sem gert var í kreppunni að fækka stjórnendum í sveitarfélögunum til þess að verja lægst launuðu stéttirnar frá því að fara á atvinnuleysisskrá. En hefðu þau bara leyft þessu að gerast innan frá og beitt okkar fagmennsku og þekkingu þá hefði farið betur.
Sumt getur verið óbærilega leiðinlegt á stundum. Dæmi: afskaplega þörf samræða um símenntun og starfsþróun kortlagning á stöðu, mat á þörf og leiðir til aðgerða. 2008 byrjaði ég í starfshóp um málið. Ráðuneytið, háskólarnir sambandið og Kennarasambandið; allt að tuttugu manns á fundum. Fyrstu árin fóru í rifrildi um það hvort kennarar væru að standa sig í starfsþróun, svo kom tímabil sem fór í skilgreiningu á hugtakinu starfsþróun. Og nokkrum sinnum var skipt um fólk í hópnum og þurfti að byrja upp á nýtt en nú 10 árum seinna er þó komið formlegt fagráð um starfsþróun og heimasíða sem ég þó ætla ekki að fullyrða um að sé alveg virk. Niðurstaðan um að handleiðslu nýliða verði að efla, starfsumhverfi kennara verði að bæta og starfsþróun sé undirstaða fagmennsku er augljós og var það líka 2008.
Efling leikskólastigsins hefur tekið jafnlangan og lengri tíma en það hefur þó skilað ýmsu og er í eðli sínu langtímaverkefni þar til við verðum búin að framleiða leikskólakennara eins og þarf árið 2050. Núverandi formaður FSL fær þetta í arf og á raunar góðan þátt í árangri sem felst í nýútkominni skýrslu í samstarfi við dr. Jón Torfa Jónasson og Félag leikskólakennara um stöðuna í leikskólunum.
Með sinni hæglátu hugprýði hefur nýi formaðurinn, Sigurður Sigurjónsson, staðið vaktina og þolað mig í aftursætinu að skipta mér af meiri vilja en mætti. Það hefði farið í taugarnar á mörgum að vita ekki hvar hann yrði næstu jól eins og segir í kvæðinu og hann hefur umbylt lífi sínu í þágu félagsins og mér til bjargar. Góðu fréttirnar eru þær að nú fær hann formleg lyklavöld og fínt rekstrarumhverfi þar sem staða félagsins er með betra móti.
Af Línu og Pollyönnu
Fyrirmyndir mínar í formannsstarfinu sem hafa verið seigastar eru þær Pollýanna og Lína Langsokkur.
Pollýanna vanmetin söguhetja sem jafnvel er gert grín að að því er ég tel vegna þess að hún er mistúlkuð sem gufa sem sættir sig við allt með jákvæðni. Aldeilis ekki. Hún er snillingur í lausnaleit og nær árangri með útsjónasemi, þrautseigju og jákvæðni.
Lína spjaraði sig og gerði lífið skemmtilegt og Pollýanna setti sér markmið og fann alltaf leiðir út úr ómögulegum aðstæðum. Þrautseigar, ráðagóðar, lífsglaðar, framsýnar, framfarasinnaðar konur. Þær hefðu báðar orðið frábærir kennarar á hvaða skólastigi sem er. Lína hefði getað orðið formaður í stéttarfélaginu sínu með dassi af hrokanum sem hún býr yfir en hún hefði orðið leið á því eftir þriðja fund um ekkert þegar verið væri að tefja kjaraviðræður. Pollýanna hefði líka getað orðið formaður og hún myndi reyna fram í rauðan dauðan að kveikja ljós hjá viðsemjendum og hún myndi þurfa að beita hörðu til að halda athygli áheyrenda.
Hvorug þeirra myndi hreykja sér á kostnað annarra og ekki stíga á aðra til að koma sjálfum sér hærra. Þær kæmust báðar áfram á eigin verðleikum en væru líklega afleitar í íþróttum. Lína myndi brjóta reglurnar og Pollýanna myndi reyna að semja um úrslitin.
Ef þær væru formenn í stéttarfélagi væru þær fyrir löngu búnar að sjá að gífuryrði og lukkuriddaramennska væri ekki að skila neinu nema kannski að halda fallvaltri aðdáun þeirra sem finnst töff að slást.
Þær væru búnar að fatta það að hagkerfi er mannanna verk og að það byggist á því að sumar stéttir séu til þjónustu og þægðar og fólk sem hugsar um fólk sé framlenging á mæðrum kynslóðarinnar sem skapaði hagkerfið.
Þær væru báðar til í byltingu stétta fólks sem vinnur með fólk. Lína færi í framlínuna og myndi hvetja til dáða og Pollýanna myndi halda fundi og fyrirlestra með rökum fyrir því að verðmætamatið sé úrelt og það þurfi Línur, Pollýönnur, Ljónshjörtu og Emila til að hvolfa því í einu lagi. Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir, vistheimili, sambýli, framhaldsskólar, grunnskólar og leikskólar eru konan og fjármálastofnanir, iðnaður og inn og útflutningur er karlinn í gamaldags úreltu hjónabandsfyrirkomulagi þar sem karlinn skaffar og konan þjónar. Þeir halda um pyngjuna og brosa góðlátlega yfir útreikningum okkar sem sýna fram á grjótharðan gróða af góðri menntun, heilbrigði og velferð.
Lína og Pollýanna ættu erfitt með að finna réttu byltingaraðferðina. Verkföll eru úrelt og hallærisleg sérstaklega þegar ein og ein stétt bisast við það þó að stundum náist stemming fyrstu dagana þá fer sá ljómi fljótt af þegar það fer að bíta. Nema við gerum það öll saman. Vekjum stemningu fyrir byltingu og við gætum byrjað á einum risastórum kvennafrídegi og þaðan að kippa undirstöðunni undan samfélaginu og byggja hagkerfið upp á nýtt.
Þegar búið er að endurmeta launasetningu fólks sem vinnur með fólk þá skulum við tala um Salek og byggja upp kjarasamningagerð með málefnalegum vitrænum hætti.
Ég ætla ekki að tala meira nema segja þúsund þakkir fyrir mig. Takk fyrir að treysta mér og takk fyrir allar skemmtilegu og gefandi stundirnar og gangi ykkur fáránlega vel.
Til lífs og til gleði.
Greinin er byggð á ræðu sem Ingibjörg Kristleifsdóttir, fráfarandi formaður FSL, flutti á aðalfundi félagsins 17. maí 2018.