Að láta boltann rúlla til að galdra heiminn

Greinin fjallar um hvernig listgreinakennari sem finnur sig svolítið einangraðan í starfi getur í samvinnu við börnin "látið boltann rúlla".
Hér birtum við fyrstu greinina eftir Pascale Cécile Darricau listgreinakennara í leikskólanum Jötunheimum á Selfossi. Greinin fjallar um hvernig listgreinakennari sem finnur sig svolítið einangraðan í starfi getur í samvinnu við börnin "látið boltann rúlla", en það var einmitt það sem Pascale gerði skólaárið 2017-2018.
Kennarinn kastar hugmynd til barnanna, notar kveikju, til dæmis sögu og býður börnum að vinna út frá henni. Ef börnin grípa hugmyndina og vinna með henni aðlaga þau hana að sínum eigin þörfum og áhugamálum. Hún breytir um leið um stefnu. Kennarinn fær boltann aftur í hendurnar. Hans verkefni er að láta hann rúlla áfram á milli sín og barnanna og á milli barnanna. Hann er milliliður, milli margra barna og hópa. Það skiptir miklu máli að gera verkefnum þeirra góð skil, skrá og gera þau sýnileg fyrir kennara, foreldra en fyrst og fremst fyrir hin börnin þannig að þau læri af öðrum og fái sjálf nýjar hugmyndir. Úr þessu verður samvinnuverkefni sem tengir hópa, deildir, börn, kennara og foreldra. Í skapandi starfi myndast menning sem er sköpun allra eða „co-creation“. Lesið áfram hér grein Pascale.