Á hvaða vegferð erum við í menntamálum?
Umræðuhefti um menntun og velferð barna er komið út á vegum Skólamálaráðs KÍ. Umræðuheftinu er ætlað að styðja við faglega umræðu skólafólks um málefnið. Tilhefni þessa hefti, sem og annarra umræðuhefta sem út hafa komið á árinu, er stefna hvítbókar í menntamálum.
Skólamálaráðið beinir að þessu sinni sjónum að menntun og velferð barna og ungmenna í íslensku samfélagi. Spurt er á hvaða vegferð við séum í menntamálum og hvaða þróun megi greina í málaflokknum. Velt er upp spurningum um hvort hvítbókin sé til framdráttar menntun, velferð og skólastarfi? Í hvaða átt þarf íslenskt skólakerfi að þróast og hvernig, hvert er hlutverk skólafólks í þróun menntakerfisins og hvernig má auka ábyrgð foreldra á námi barna sinna?
Skólamálaráð hvetur félaga í KÍ til að kynna sér efni umræðuheftisins og stuðla að faglegri umræðu um þennan mikilvæga málaflokk. Hugleiðingar og pistlar um efnið verða birtir í miðlum KÍ.
Umræðuhefti skólamálaráðs um menntamál það sem af er árinu 2016:
- Umræðuhefti um menntamál (janúar 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – læsi (febrúar 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – starfsmenntun (mars 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – námstími (apríl 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – kennsluhættir og námsmat (maí 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – samstarf heimila og skóla (september 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – námsgögn og námsefni (október 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – menntun og velferð (nóvember 2016)
Skólamálaráð hvetur félagsfólk til að kynna sér umræðuheftið og stuðla að umfjöllun um það. Skólamálaráð fagnar öllum ábendingum og þönkum um efnið. Pistlar sem berast verða birtir í miðlum KÍ.