Á fyrsta maí

Sótt er að frelsi og sjálfstæði dómstóla, fjölmiðla og menntakerfa. Samfélagsumræða er víða í rústum og stór hluti þjóða fæst ekki út úr bergmálshellum.
Árið 1899 birtist skrítla í Punch-tímaritinu í London sem spáði fyrir um lífið á öldinni sem þá var við það að renna í garð. Snillingur kemur inn í opinbera stofnun og kemst að því að búið er að loka flestum deildum og láta vélar um vinnuna. Þegar snillingurinn segist hafa góða hugmynd og biður um að fá að leggja inn einkaleyfi á uppfinningu er honum tjáð að það sé ekki hægt, búið sé að finna upp allt sem á annað borð sé hægt að finna upp.
Löngu seinna gekk sagan aftur í bók og hafði þá tapað samhenginu. Þá voru lokaorð sögunnar orðin fúlasta alvara og höfð eftir yfirmanni bandarísku einkaleyfastofunnar um þar síðustu aldamót. Hún hefur oft síðan verið endurtekin sem dæmisaga um skammsýni forfeðranna.
Varsjáryfirlýsingin
Ástæða þess að ég rifja þetta upp er fundur sem haldinn var árið 2000 í Varsjá í Póllandi. Þar litu fulltrúar hundrað þjóða yfir farinn veg og gáfu frá sér þá yfirlýsingu að allir valdhafar þægju vald sitt frá þjóðunum sem þeir þjónuðu. Fulltrúar sumra ríkja gengu svo langt að segja að loks liti út fyrir að öld lýðræðisins væri runninn upp eftir margar misheppnaðar tilraunir með annað stjórnarfar.
Fólk virtist vissulega hafa ástæðu til bjartsýni um síðustu aldamót. Frá því um miðja öldina hafði lýðræðið breitt úr sér eins og líknandi blæja yfir hverja þjáða þjóðina á fætur annarri. Nasisminn var frá og fjöldi nýfrjálsra ríkja losnaði undan nýlenduoki herraþjóðanna. Alræði vék fyrir lýðræði í Grikklandi (1974), á Spáni (1975), í Argentínu (1983), Brasilíu (1985) og Síle (1989). Á síðasta áratug síðustu aldar féll síðan járntjaldið og Suður-Afríka braut sér leið undan aðskilnaðarstefnunni. Aldamótaárið bjó meirihluti mannkyns við lýðræði og ekkert lát virtist ætla að verða á útbreiðslu þess.
Stöðnun og bakslag
Það sem af er 21. öld hefur því miður einkennst af stöðnun og bakslagi.
Í nokkra áratugi hefur jafnt og þétt hefur dregið úr kosningaþátttöku á heimsvísu (með nokkrum skammvinnum undantekningum). Þátttaka í starfi stjórnmálaflokka hefur einnig snarminnkað. Sótt er að frelsi og sjálfstæði dómstóla, fjölmiðla og menntakerfa. Samfélagsumræða er víða í rústum og stór hluti þjóða fæst ekki út úr bergmálshellum. Áföll skapa úlfúð og átök; þras og þrætur. Eftirspurn er eftir sterkum og miskunnarlausum leiðtogum. Mesti efnahagslegi uppgangur þessarar aldar er í Kína, í ríki sem kinnroðalaust hefur lýst því yfir að lýðræðið sé til trafala.
Samfélagsumræða er víða í rústum og stór hluti þjóða fæst ekki út úr bergmálshellum.
Sérlega athyglisvert er að beina sjónum til Rússlands þar sem lýðræðið er tiltölulega ungt. Fjórum sinnum fleiri Rússar telja sterkan efnahag mikilvægan en öflugt lýðræði. Kannanir þar í landi hafa leitt í ljós að Rússar kunna ágætlega að meta lýðræðið en tortryggja það þegar mikið er í húfi eða þegar lýðræðið veitir einhverjum hópum réttindi sem viðkomandi er í nöp við. Þannig er talið eðlilegt að lýðræðið víki bæði fyrir hagsmunum og fordómum.
Það kann að vera eðlilegt að ung lýðræðisríki standi óstyrkum fótum en þá er hægt að horfa vestur til Bandaríkjanna þar sem þau undur gerðust snemma á þessu ári að sitjandi forseti neitaði að viðurkenna ósigur í kosningum og gerði tilraun til að þrýsta á þingmenn til að koma í veg fyrir valdaskipti.
Sjötíu og fimm prósent fólks býr í löndum sem sýndu mælanlega lýðræðislega afturför árið 2020. Heimsfaraldur og efnahagslegar afleiðingar hans hafa orðið vatn á milli alræðisins.
Hnignun lýðræðis er hættuleg
Þegar almenningur tekur undir þá hugmynd, að lýðræðið skuli þá aðeins virt þegar lítið liggur við eða þegar það þjónar manni sjálfum, hefur skapast hætta. Lýðræðið spratt víða upp úr brunarústum alræðisins en gleymum ekki hinu - að alræðið gróf víða um sig til að byrja með á ruslahaugum hruninna lýðræðisríkja.
Hnignun lýðræðisins er hættuleg mannlífinu um heim allan. Hún dregur úr vilja og getu heimsbyggðarinnar til að takast á við áskoranir. Hún klýfur þjóðir heims í fylkingar og etur þeim hverjum gegn öðrum. Hún greiðir götu sérhagsmuna á kostnað hagsmuna fjöldans.
Hnignun lýðræðisins er hættuleg mannlífinu um heim allan.
Í annað sinn í tæpa öld getur íslenskur almenningur ekki komið saman á fyrsta maí til að minna sjálfan sig og valdhafana á hvaðan valdið er sprottið. Félagasamtök, stjórnmálaflokkar og stéttarfélög hafa ekki getað haldið úti eðlilegu félagsstarfi og fundum. Fólk fjarlægist hvert annað og raddir sem ættu að hljóma þagna. Það skapar okkur öllum vanda. Við höfum séð hvernig lýðræðið í samtökum okkar kennara hefur veiklast og bognað undan blöndu af aðstæðna, áhugaleysi og þunga sérhagsmuna. Hið sama gildir um lýðræðið í landinu.
Varðhundar sérhagsmuna taka sér aldrei frí og engin áföll eru svo stór að þeir sjái ekki í þeim tækifæri. Almannahagsmunir verða alltaf undir ef um þá er ekki staðinn vörður. Enginn getur staðið þann vörð annar en almenningur.
Mikilvægt er að heimsbyggðin grípi til varna fyrir lýðræðið. Að öðrum kosti kann, seinna á þessari öld, að renna upp sá tími að skrifuð verði bók þar sem búið verður að slíta trú aldamótakynslóðarinnar á öld lýðræðisins úr samhengi - og að það hljóti allt að hafa verið einhver skrítla.