Á annað hundrað tilnefningar bárust

Fréttir|11. júní 2020

Íslensku menntaverðlaunin verða veitt í byrjun nóvember.

Alls bárust 111 tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna, en frestur til að senda inn tilnefningu rann út 1. júní síðastliðinn.

Viðurkenningarráð, undir forystu Gerðar Kristnýjar rithöfundar, vinnur nú að því að velja þrjár til fimm tilnefningar í hverjum flokki. Tilnefningar verða kynntar á Alþjóðadegi kennara 5. október. 

Íslensku menntaverðlaunin veita forseti Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið í samvinnu við fjölmarga aðila. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, kennari og þróunarverkefni eru verðlaunuð.

Að auki eru veitt hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. 

Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í byrjun nóvember.