Á að samþætta skólagöngu og geðrækt?

Er skólakerfið tilvalinn staður til að vinna á vaxandi geðheilbrigðisvanda ungmenna eða leiðir samþætting skólagöngu og geðræktar okkur inn á varhugaverðar brautir?
Vísbendingar eru um að kvíði fari vaxandi meðal barna og unglinga og að margt ungt fólk glími við geðrænar áskoranir. „Samt er mjög margt óljóst um hvað af vanlíðan þess er vegna eiginlegra sjúkdóma og hvað vegna samfélagshátta – að hve miklu leyti starfshættir og menning skóla valda henni og að hve miklu leyti orsakirnar eru af öðru tagi, svo sem eins og lífsviðhorf og skoðanir, mataræði, svefnvenjur, innivera og hreyfingarleysi, snjalltæki og samskiptamiðlar.“
Svo skrifar Atli Harðarson, heimspekingur og prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, í nýrri grein sinni, Geðveiki, skólastarf og skynsemismyrkur, á vef Skólaþráða.
Þar fjallar Atli um nýjasta tölublað tímaritsins Journal of Philosophy of Education, sem helgað er umfjöllun um geðheilsu og menntun. Fjöldi fólks – fræðimenn, sérfræðingar, sálfræðingar, læknar og heimspekingar þar á meðal – fjalla á fjölbreytta vegu um málaflokkinn á 189 síðum ritsins.
Meðal umfjöllunarefna er hlutverk og aðkoma skólakerfisins í geðheilbrigðismálum og hve umfangsmikið það á að vera. Hvort skólakerfið sé tilvalinn staður til að vinna á vaxandi vandamálinu, eða hvort vankantarnir við samþættingu skólagöngu og geðræktar séu of margir.
Greinina má lesa í heild sinni á vef Skólaþráða.