90 prósent hafa greitt atkvæði í MB
Fréttir|31. maí 2021

Þátttaka í Verzló var 17 prósent á hádegi í dag. Kosið er um nýjan kjarasamning í báðum skólum.
Alls höfðu 90% félagsmanna, í Félagi framhaldsskólakennara(FF) og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum (FS) sem starfa í Menntaskóla Borgarfjarðar, greitt atkvæði um nýjan kjarasamning á hádegi í dag.
Atkvæðagreiðsla um nýjan samning stendur einnig yfir í Verzlunarskóla Íslands en þar höfðu 17% félagsmanna í FF og FS greitt atkvæði í dag.
Skrifað var undir kjarasamninga við báða skóla 27. maí síðastliðinn.
Atkvæðagreiðsla um samningana tvo stendur yfir til klukkan 14:00 á morgun.