70 milljónir á fyrsta ári nýs Menntarannsóknasjóðs

Fréttir|2. júlí 2021

Sjóðurinn mun styrkja hagnýtar menntarannsóknir á öllum skólastigum.

Nýr Menntarannsóknasjóður er orðinn að veruleika en hann mun styrkja hagnýtar menntarannsóknir á öllum skólastigum. Markmið sjóðsins er að auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og umbóta í skólastarfi og styðja við innleiðingu nýrrar menntastefnu.

Á vef Stjórnarráðsins eru fyrstu rannsóknaáherslur kynntar en þær eru:

  • Nám og kennsla nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn
  • Skólaforðun og brotthvarf úr námi
  • Nám og kennsla í raungreinum

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitir styrki úr sjóðnum strax á þessu ári en markmiðið er að lögfesta hann á haustþingi 2021 og móta þar framtíðarumgjörð í samræmi við aðra opinbera rannsóknasjóði. Árið 2021 verða 70 milljónir króna til úthlutunar.

„Opnað verður fyrir umsóknir þann 1. september nk. og verður umsóknafresturinn til 1. október. Rannís annast umsýslu sjóðsins, og mun meðal annars skipa fagráð óðháðra rannsakenda á sviði menntavísinda sem leggja mun mat á umsóknir áður en úthlutunarnefnd tekur þær til umfjöllunar og gerir tillögu til ráðherra um ráðstöfun fjárveitinga til styrkþega. Nánari upplýsingar verður að finna á vef Rannís,“ segir á vef Stjórnarráðsins.