67% höfðu kosið um kjarasamning FG klukkan tólf

Fréttir|5. júní 2018

Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Alls höfðu 67% greitt atkvæði um nýjan kjarasamning Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga klukkan tólf í dag. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14 í dag. 

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Mig vantar Íslykil sem er á innskráningarsíðunni. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist tengill á kosninguna.

  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FG 2018 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Félagsmaður getur skipt um skoðun og kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði. Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.