37% hafa greitt atkvæði í formannskjöri KÍ

Alls höfðu 37% félagsmanna í Kennarasambandi Íslands greitt atkvæði í kosningu um formann KÍ klukkan 12 í dag.
Alls höfðu 37% félagsmanna í Kennarasambandi Íslands greitt atkvæði í kosningu um formann KÍ klukkan 12 í dag, 6. nóvember. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14 á morgun, þriðjudaginn 7. nóvember.
Framjóðendur til formanns KÍ eru:
- Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara
- Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara
- Ragnar Þór Pétursson, grunnskólakennari í Norðlingaskóla
Kynning á frambjóðendum er hér.
Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Mig vantar Íslykil sem er á innskráningarsíðunni.
- Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin. Smelltu á Atkvæðagreiðsla um formann KÍ og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann KÍ.
- Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Ef þú vill fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.