33% hafa kosið hjá Fjölmennt, 27% í Verzló
Fréttir|27. maí 2020

Atkvæðagreiðsla um nýja kjarasamninga stendur yfir hjá Fjölmennt og Verzlunarskóla Íslands.
Alls höfðu 33,3% félagsmanna í FF og FS, sem starfa hjá Fjölmennt, greitt atkvæði um nýjan kjarasamning í hádeginu í dag. Kjörsókn í sambærilegri atkvæðagreiðslu félagsmanna FF og FS, sem starfa í Verzlunarskólanum, var aðeins minni á hádegi í dag, eða 27,16%.
Skrifað var undir samkomulag um framlengingu kjarasamnings KÍ og Fjölmenntar síðastliðinn föstudag en undirritun samkomulags um framlengingu kjarasamnings KÍ og Verzlunarskólans fór fram síðastliðinn mánudag.
Atkvæðagreiðsla hófst í báðum skólum í gærmorgun og stendur til klukkan tólf á morgun.