32 prósent höfðu greitt atkvæði á hádegi

Fréttir|10. janúar 2022

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags grunnskólakennara stendur yfir.

Alls höfðu 32,41% félagsmanna FG greitt atkvæði um nýjan kjarasamning félagsins á hádegi í dag. 

Atkvæðagreiðslan hófst síðastliðinn föstudag og stendur til klukkan 12 næstkomandi fimmtudag, 13. janúar. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi grunnskólakennara er starfa hjá sveitarfélögum landsins.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is. Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.

  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FG 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Talning auðra atkvæða í atkvæðagreiðslu um kjarasamning.

Með vísan til dóms Félagsdóms nr. 6/2020 teljast auð atkvæði með greiddum atkvæðum. Yfir 50% allra greiddra atkvæða þarf til að fella kjarasamning. Það felur í sér að auð atkvæði geta jafngilt atkvæðum sem samþykkja kjarasamning.