22 prósent höfðu greitt atkvæði á hádegi

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags grunnskólakennara stendur yfir.
Alls höfðu 22,23% félagsmanna Félags grunnskólakennara greitt atkvæði um nýjan kjarasamning félagsins á hádegi í dag.
Atkvæðagreiðslan hófst í gær og stendur til klukkan 10 næstkomandi föstudag, 18. mars. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi grunnskólakennara er starfa hjá sveitarfélögum landsins.
Nálgast má samninginn, launareiknivél, upptöku frá kynningarfundi og kynningarefni hér.
Um atkvæðagreiðsluna:
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
- Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FG í mars 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.
Talning auðra atkvæða í atkvæðagreiðslu um kjarasamning
Með vísan til dóms Félagsdóms nr. 6/2020 teljast auð atkvæði með greiddum atkvæðum. Yfir 50% allra greiddra atkvæða þarf til að fella kjarasamning. Það felur í sér að auð atkvæði geta jafngilt atkvæðum sem samþykkja kjarasamning.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.