2 mínútur af Þórunni Sif

Fréttir|9. desember 2021

Þórunn Sif Böðvarsdóttir, grunnskólakennari í Laugalækjarskóla og frambjóðandi til varaformanns KÍ, skrifar.

Kæru kennarar. Ég er í framboði til varaformanns Kennarasambands Íslands vegna þess að ég hef brennandi áhuga á málefnum okkar kennara á öllum skólastigum eða öllu heldur - faglærðra sérfræðinga – eins og ég kýs að kalla okkur.

Afar brýnt er að við sameinumst enn frekar í faglegri skólaumræðu á öllum stigum. Með auknu samtali á milli skólastiga eflum við ekki einungis félagið okkar; sjálfsmynd okkar félagsmanna styrkist jafnframt. Í því samhengi er oft talað um valdeflingu kennarastéttarinnar í heild sinni.

Það er hluti af fagmennsku að gera raunhæfar kröfur og láta ekki bjóða sér óásættanlegt starfsumhverfi eða laun undir viðmiðunarstéttum.

Það er löngu kominn tími til að styrkja og efla kennara í starfi, ekki síst að bæta þá þætti sem vitað er að valda mestu álagi. Við þurfum aukið rými til að sérfræðiþekking okkar njóti sín.

Stórauka þarf virðingu fyrir fagmennsku kennara og tryggja þarf aðkomu þeirra að stefnumörkun menntamála landsins. – Engin stefnumörkun án aðkomu kennara.

Hvernig kennarar brugðust við þegar heimsfaraldurinn skall á sannar að stéttin er ekki einungis sveigjanleg, heldur sýndi sig einnig hversu úrræðagóð og vel við erum í stakk búin til að takast á við breytingar.

Öll vitum við að þörf er á meiri nýliðun í kennarastéttinni. Til þess að svo geti orðið verður að standa við fimm ára gömul loforð viðsemjenda okkar um að jafna laun kennara við viðmiðunarstéttir. Hér þarf að sækja á!

Að kenna upprennandi kynslóðum er ábyrgðarhlutverk sem krefst samstöðu kennara, eldmóðs og fagmennsku.

Að vera varaformaður krefst þjónustulundar, virðingar og seiglu.

Ég er ekki í nokkrum vafa um að ég sé rétta manneskjan í starf varaformanns Kennarasambands Íslands.

Ég er harðdugleg, fylgin mér, ósérhlífin og heiðarleg. Ég hlakka til spennandi samstarfs við nýkjörinn  formann, Magnús Þór Jónsson og er reiðubúin að nýta krafta mína til að vinna að því að gera veg allra kennara á Íslandi sem mestan.

Kjósum sterka forystu!