17 prósent hafa greitt atkvæði

Fréttir|25. júní 2021

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning FF/FS og Tækniskólans stendur yfir.

Alls höfðu 17 prósent félagsmanna, FF og FS, sem starfa í Tækniskólanum greitt atkvæði um nýjan kjarasamning á hádegi í dag. Atkvæðagreiðslan hófst á hádegi í gær og lýkur á hádegi næstkomandi mánudag. 

Skrifað var undir samkomulagið í fyrradag. 

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.

  • Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning KÍ og Tækniskólans og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda framhaldsskóla sem starfa hjá Tækniskólanum. 

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.