14% hafa greitt atkvæði í formannskjöri FG
Fréttir|19. janúar 2018

Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14 næstkomandi mánudag, 22. janúar.
Alls höfðu 14% félagsmanna í Félagi grunnskólakennara greitt atkvæði um formann félagsins klukkan tólf í dag. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14 næstkomandi mánudag, 22. janúar.
Frambjóðendur til formanns Félags grunnskólakennara eru fimm; þeir eru eftirtaldir:
- Hjördís Albertsdóttir
- Kjartan Ólafsson
- Kristján Arnar Ingason
- Rósa Ingvarsdóttir
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir