#12dagaTwitter - áskorun
Fréttir|2. desember 2020

Ný áskorun birtist á hverjum degi þar sem kennarar og skólastjórar brugðust við og tóku þátt.
Tólf daga áskorun er nýlokið á Twitter en það var hún Sif Sindradóttir, kennari í Álftamýrarskóla, sem setti hana af stað. Ný áskorun birtist á hverjum degi þar sem kennarar og skólastjórar brugðust við og tóku þátt. Þátttakan var mikil og greinilegt að þetta form hentar mjög mörgum.
Áhugavert er að renna í gegnum færslurnar og eru örfáar þeirra birtar hér að neðan - valdar af handahófi. Allar færslurnar má finna undir myllumerkjunum #12dagaTwitter og #menntaspjall.





















