109 tungumál í skóla- og frístundastarfi

96% grunnskóla og 40% leikskóla tóku þátt í könnuninni.
Í tilefni alþjóðadags móðurmálsins 21. febrúar síðastliðinn var blásið til tungumálaleitar meðal barna og unglinga í leikskólum, grunnskólum og í frístundastarfi á Íslandi. Hugmyndin var að um leið og öll tungumál töluð af börnum og unglinum yrði kortlögð þá myndi verkefnið stuðla að jákvæðri umræðu um tungumál. Samhliða myndu börn og unglingar finna til stolts yfir móðurmáli sínu enda er öflugt móðurmál grunnurinn að frekara tungumálanámi.
Á vef Háskóla Íslands er fjallað um tungumálaleitina og rætt við Renötu Emilsson Pesková, doktorsnema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og stjórnarmann Móðurmáls – samtaka um tvítyngi. „Umræðan um mikilvægi móðurmálsins og tungumála er það sem skiptir öllu máli. Slíkar áherslur í menntun barna hafa í heiðri gildi Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og drög stjórnvalda að stefnu um menntun barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn. Nýi leiðarvísirinn um stuðning við móðurmál og virkt fjöltyngi er jafnframt mikilvæg staðfesting stjórnvalda á rétti barna og ungmenna til að viðhalda og efla móðurmál sitt, “ segir Renata.
Hún segir jafnframt að þátttaka skóla í kortlagningu tungumála hafi verið góða en 96% grunnskóla og 40% leikskóla tóku þátt. Einnig tóku frístundaheimili og félagsmiðstöðvar þátt.
Tungumálaforðinn var kortlagður árið 2014 en síðan þá bættust 14 tungumál við og því er fjöldi tungumála í skóla- og frístundastarfi nú 109. Hægt er að kynna sér málið nánar á vef samtaka Móðurmáls og þar má finna gagnvirkt Íslandskort.
