1. maí: Jöfnum kjörin – samfélag fyrir alla

Kennarasamband Íslands hvetur félagsmenn til að sýna samstöðu og mæta á baráttufundi og kröfugöngur á alþjóðlegum baráttudegi launafólks 1. maí. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er Jöfnum kjörin – samfélag fyrir alla.
Kennarasamband Íslands hvetur félagsmenn til að sýna samstöðu og mæta á baráttufundi og kröfugöngur á alþjóðlegum baráttudegi launafólks 1. maí. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er Jöfnum kjörin – samfélag fyrir alla.
Baráttufundir og kröfugöngur verða haldnar um land allt og hvetur KÍ félagsmenn til að kynna sér dagskrá í sinni heimabyggð og taka þátt. Samtakamátturinn skiptir alltaf máli.
KÍ kemur formlega að hátíðarhöldum í Reykjavík, á Selfossi og Akureyri.
Í Reykjavík verður safnast saman á Hlemmi klukkan 13:00. Kröfugangan leggur af stað klukkan 13.30 og verður gengið niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og endað á Ingólfstorgi þar sem útifundur hefst klukkan 14:10. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika tónlist í göngunni.
Reykjavík
ÚTIFUNDUR Á INGÓLFSTORGI
- GDRN
- Ávarp: Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags
- GDRN
- Ávarp: Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB
- Bubbi Morthens
- Samsöngur: Maístjarnan og Internatsjónalinn
- Fundarstjóri: Þórarinn Eyfjörð
Öll dagskrá verður táknmálstúlkuð.
Félagsmönnum KÍ er boðið að þiggja kaffiveitingar á Grand Hótel Reykjavík að göngu lokinni eða klukkan 15.
Akureyri
Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið klukkan 13:30 og lagt verður af stað við undirleik Lúðrasveit Akureyrar klukkan 14:00.
Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu
- Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna – Jóhann Rúnar Sigurðsson, formaður FMA
- Aðalræða dagsins – Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands
Skemmtidagskrá
- Örn Smári Jónsson syngur frumsamin lög
- Svenni Þór og Stefánía Svavars syngja lög úr myndinni A star is born
Hátíðardagskrá lýkur með sameiginlegum söng á Maístjörnunni undir stjórn Svenna og Stefaníu
Kaffiveitingar að lokinni dagskrá
UPPLÝSINGAR UM DAGSKRÁ VÍÐA UM LAND