1. maí ávarp formanns KÍ

Fréttir|1. maí 2020

Samstaðan er það vopn sem dugar best, segir Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ, í ávarpi á baráttudegi launafólks.

„Í dag er dagurinn þar sem við minnumst þess sem áunnist hefur í baráttunni fyrir réttlátu samfélagi,“ segir Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, í ávarpi sem er tileinkað 1. maí, baráttudegi launafólks. 

Ragnar Þór segir kennara hafa staðið í fararbroddi síðustu vikur við að verja samfélagið fyrir vágesti. „Þar hafa þeir staðið undir sínu og meira til.“

Þá segir Ragnar Þór að halda beri á lofti þeirri kröfu að kennarar fái mannsæmandi laun fyrir sitt mikilvæga starf. 

Yfirskrift dagsins er: Byggjum réttlátt þjóðfélag!

Hvatningarfundur í sjónvarpinu

1. maí er sögulegur í dag þar sem engar kröfugöngur eða samkomur fara fram vegna COVID-19. Við minnum á útsendingu á sérstakri skemmti- og hvatningardagskrá sem flutt verður í Hörpu. Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og hvatningarorð frá forystu verkalýðshreyfingarinnar einkenna þennan sögulega viðburð. Að dagskránni standa KÍ, ASÍ, BHM og BSRB. 

Upptaka frá útsendingunni.