1. maí – Við vinnum

Fréttir|30. apríl 2022

Kennarasamband Íslands hvetur félagsmenn til að sýna samstöðu og mæta á baráttufundi og kröfugöngur á alþjóðlegum baráttudegi launafólks 1. maí. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er Við vinnum.

Kennarasamband Íslands hvetur félagsmenn til að sýna samstöðu og mæta á baráttufundi og kröfugöngur á alþjóðlegum baráttudegi launafólks 1. maí. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er Við vinnum. 

Baráttufundir og kröfugöngur fara fram um land allt og hvetur KÍ félagsmenn til að kynna sér dagskrá í sinni heimabyggð og taka þátt. Samtakamátturinn skiptir alltaf máli.

KÍ kemur formlega að hátíðarhöldum í Reykjavík. 

Í Reykjavík verður safnast saman á Hlemmi kl. 13. Kröfugangan fer af stað klukkan 13:30 og munu Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika í göngunni. 

Útifundur á Ingólfstorgi

Fundurinn hefst klukkan 14:10. Fundarstjóri verður Þórhildur Þorkelsdóttir. 

  • Ávarp – Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis
  • Ávarp – Drífa Snædal, forseti ASÍ
  • Tónlist – Bubbi Morthens, Una Torfa, Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur. 

Fundi lokið