
Almenna reglan er sú að starfsmaður á ekki að bera kostnað af ferðalögum á vegum vinnuveitanda. Hér fyrir neðan má finna reglur um slíkar greiðslur en miðað er við reglur hins opinbera.
Leyfilegur frádráttur á móti dagpeningum og akstursgjaldi, samkvæmt skattamati ríkisskattstjóra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og Ferðakostnaðarnefnd ríkisins ákvarðar. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum. Sjá nánar upplýsingar á vef ríkisskattstjóra um skattamat vegna dagpeninga og akstursgreiðslna.
*Upplýsingar um SDR gengi má finna á vef Seðlabanka Íslands.